
316-biblían er verkefni sem snýst um að gera Biblíuna aðgengilegri á íslensku fyrir ungt fólk. Fyrsta skrefið er að gera tilraunaútgáfu af Markúsarguðspjalli fyrir lok júní 2026. Verkefnið er á vegum Every Nation Ísland.
Textinn verður aðgengilegur rafrænt á ebible.org en þar er einnig hægt að skoða margar fleiri þýðingar. Einnig verður hægt að kaupa prentuð eintök af textanum, en nánar um það síðar.
Endurgjöf
Öll aðstoð við rýni, ábendingar og endurgjöf á textanum er vel þegin. Textinn verður aðgengilegur á ebible.org jafnóðum og hann er þýddur. Hver sem er getur skráð sig á póstlistann hér fyrir neðan til að fá fréttir af verkefninu, eins og hvaða kaflar eru tilbúnir til yfirlestrar, og sent svo inn endurgjöf.
Það þarf að skrá sig inn á Airtable til að nota endurgjafareyðublaðið hér fyrir neðan. Það er til að sjá hver sendi inn endurgjöf og stoppa ruslpóst. Ef þú ert með Google account þá er einfaldast að skrá sig inn þannig. Einnig er hægt að búa til nýjan Airtable notanda. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að byrja eða sendu okkur línu ef þú þarft aðstoð. Það er best að var í tölvu en ekki síma þegar þetta eyðublað er notað í fyrsta skiptið. Sendu okkur línu ef þú þarft aðstoð með þetta, við viljum að þetta virki fyrir alla.
Til að senda inn mikið af ábendingum og endurgjöf getur verið fljótlegast að senda okkur Excel skjal í tölvupósti:
- Náðu í Excel skjal sniðmátið
- Sendu svo útfyllt skjalið til okkar í tölvupósti sem viðhengi.
Leyfismál
316-biblían notar CC-BY-SA leyfið sem gerir öðrum mögulegt að nota textann með margvíslegum hætti. Sem dæmi (ekki tæmandi):
- Deila — afrita og endurdreifa efninu á hvaða miðli eða sniði sem er, í hvaða tilgangi sem er.
- Aðlaga — endurblanda, umbreyta og byggja ofan á efnið í hvaða tilgangi sem er.
Fólkið
- Þóra Ingvarsdóttir – þýðandi
- Ágúst Valgarð Ólafsson – yfirlestur og verkefnisstjórn
- Böðvar Björgvinsson – yfirlestur
- Davíð Ómar Kristjánsson – yfirlestur
- Kristín Þyrí Þorsteinsdóttir – yfirlestur
- Linda Sif Magnúsdóttir – yfirlestur
Bæn
Bæn fyrir verkefninu er vel þegin. Bænarefni verða send út á póstlistann jafnóðum. Ef þú vilt biðja fyrir verkefninu þá skaltu skrá þig á póstlistann hér fyrir neðan.